8.10.2010 | 23:21
Fórnarlömb.
Það er leitt að heyra að einhverjir hafi verið ginkeyptir fyrir svona endemis bulli. En má ég minna á að Íslensk svikamilla náði að kría út 16000 milljarða bæði frá Íslendingum og um allan heim. Ég veit ekki hvað ykkur finns en mér finnst það allavega jafnstór frétt.
Fórnarlömb alþjóðlegrar svikamyllu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2010 | 23:10
Er ekki tímabært að setja ferðaskatt á Össur.
Aldrei spurning um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2010 | 22:25
Norænn velferð sunnan heiða.
Líklega á norræna velferðin ekki að ná út fyrir 101 Reykjavík. Þetta blessað hyski sem situr á Alþingi núna er búið að loka sig frá þjóðinni og hefur ekki hugmynd um hvað gerist utan veggja þingsins. Æ jú nú var ég að vanmeta pakkið. það er alveg með á hreinu hvað AGS vill og það veit líka hvað bankarnir þurfa til að vera sterkir, eins og kommúnistaleiðtoginn kallar það. Alla vega er á hreinu að allt þeirra ráðleysislega brall snýst allt um að verja bankana fyrir sveltandi skrýlnum sem er að tapa aleigu sinni. Og best er að loka bara allri heilbrigðisþjónustu ,fyrst utan Reykjavíkur svo þegar það dugar ekki til þá hérna líka. Og lífeyrissjóðirnir mega ekki tapa. þeir eru búnir að afhenda glæpamönnunum sem allt settu á hausinn tugi eða hundruð milljarða en ef almenningur ætti að fá krónu í leiðréttingu þá er hætta á að við fengjum svo lágan lífeyri að við gætum ekki borgað af útblásnu lánunum í ellinni. Ég fyrir mitt leiti vildi frekar vera skuldlaus í ellinni með lágan lífeyri en með 10 - 20 % hærri ellilaun og stórskuldugur.
Er þetta ekki að verða gott hjá Jóhönnu og Steingrími. Finnst ykkur það ekki.
Fólk fór að gráta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kaupleigurétt á eignir við lokasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2010 | 23:03
Betra að vinna en vinna.
Svandís áfrýjar dómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2010 | 22:55
Tau nart við hjarta á mær.
Ég veit ekki hvort fyrirsögnin er rétt skrifuð hjá mér en ég á bara ekki betri orð til að lýsa tónleikunum sem ég fór á í Langholtskirkju á laugardagskvöldið. Þar voru Jógvan Hansen og Seytjan sangarar frá Klakksvik í Færeyjum. Kórinn heitir þetta þó ég sæi aldrei nema 14 söngvara en það dugði. Þetta var kannski ekki besti kór sem ég hef heyrt í en upplifunin var samt mögnuð. Ég hef heyrt í úrvalssöngvurum sem er leiðinlegt að hlusta á en það eru líka til slakir söngvarar sem gefa svo mikið af sér að maður heillast algjörlega. Þetta voru fínir söngvarar sem náðu mér algjörlega með fínni dagskrá og góðum flutningi. Sérstaklega fundust mér sópranraddirnar tærar og fallegar. Tvisvar hef ég komið til Færeyja og núna langar mig aftur. Mikið óskaplega eru Færeyingar skemmtilegt fólk. Svo eru þeir líka vinir okkar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2010 | 22:30
Ömurlegt að heyra.
Það er ömurlegt að vita til þess að svona hlutir gerist hér. Einnig finnst mér ömurlegt að lesa fréttir af nánast hverju sem er sem eru svo illa skrifaðar að ég held að 9 ára krakkar geti betur. Ég vil að Morgunblaðið taki sig á og fari aftur að gera kröfur um málfar hjá blaðamönnum.
Smá ábending.
Lengi vel var Morgunblaðið eitt um að skrifa orðið "stemmning" rétt, maður sá annarsstaðar ýmist "stemming" eða "stemning" en Mogginn gafst upp og nú er bara stemning á leikjum.
Ég veit ekki með ykkur en það er engin stemmning fyrir stemningu hjá mínu fólki.
Siggi Sig.
Námu konu á brott í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.8.2010 | 22:41
Ferðasaga Ítala
Varðandi seinkunina á fluginu þá var framkoma IE við farþega til háborinnar skammar. ég var með Ítali hjá mér sem áttu pantað flug sem átti að fara kl. 15:50 á laugardag. kl 9 um morguninn sáum við að fluginu hafði verið seinkað til 21 sem var gott og blessað að vita, við gæatum notað daginn í skoðunarferðir. Þegar við eru lögð af stað og erum á leið austur fyrir fjall kl. rúmlega 12 á hádegi fréttum við að flugið sé komið á áætlun sem sagt kl 15:50. Mér fannst þetta frekar ólíklegt og hringi í öll númer sem ég gat fundið en fékk hvergi samband við flugfélagið "ferðaskrifstofuna" en náði í stjórnstöð flugstöðvar, Þar var mér sagt að flugið væri á áætlun þannig að við snérum við. Þegar við erum komin í bæinn aftur fær einn farþeginn SMS , það voru fyrstu og einu upplýsingarnar sem þeir fengu um breytingar, um að fluginu hefði verið seinkað til 20:00. Þau voru orðin leið á þessum hringlandahætti þannig að við fórum heim og mættum síðan á flugvöllinn í fyrra fallinu þar sem þau vildu eyða tíma í flugstöðinni. síðan tók við seinkun á seinkun ofan og flugið fór í loftið kl. 1:15 um nóttina. þegar ég hef flogið með Icelandair hef ég alltaf fengið góðar upplýsingar um allar breytingar og í mínum tillfellum hafa þær staðist. Málið er það að þetta er að gerast aftur og aftur hjá IE og þó ég eins og fleiri viljum hafa samkeppni þá er ekki hægt að láta bjóða sér hvað sem er.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2010 | 10:50
Vonar að persóna þín flækist ekki fyrir við afgreiðslu málsins.
Skilur réttláta reiði almennings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.8.2009 | 06:26
Indriði H. Þorláksson
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)