Færsluflokkur: Dægurmál
25.9.2012 | 14:39
Leki.
Það er alveg merkilegt með blaða og fréttamenn hvað þeir leifa viðmælendum að komast upp með mikið múður. Í viðtali í gær í Kastljósi þar sem Helgi Seljan ;sem er yfirleitt harður á sínu,ræddi við formann fjárlaganefndar, leifði hann honum að snúa málinu meira og minna uppí bull þar sem aðalatriðið var lekinn á skýrslunni. Ekki það mál að kostnaðurinn við tölvukerfið hafði 25faldast frá því sem var heimilað í fjárlögum. Ekki heldur að það skuli taka 9 ár að fara yfir málið hjá Ríkisendurskoðun.
Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.9.2012 | 14:28
Lekinn.
Það er alveg merkilegt með blaða og fréttamenn hvað þeir leifa viðmælendum að komast upp með mikið múður. Í viðtali í gær í Kastljósi þar sem Helgi Seljan ;sem er yfirleitt harður á sínu,ræddi við formann fjárlaganefndar, leifði hann honum að snúa málinu meira og minna uppí bull þar sem aðalatriðið var lekinn á skýrslunni. Ekki það mál að kostnaðurinn við tölvukerfið hafði 25faldast frá því sem var heimilað í fjárlögum. Ekki heldur að það skuli taka 9 ár að fara yfir málið hjá Ríkisendurskoðun.
Leka vísað til lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2012 | 13:21
Leyndin.
Það er skondið með þessa leynd sem lífeyrissjóðirnir börðust fyrir að fá aflétt, sem var virkilega gott hjá þeim að gera, en fyrstu viðbrögð eftir að þeir fengu upplýsingarnar í hendur voru þau að vilja ekkert tjá sig um þær. Fréttastofan komst yfir einhverjar upplýsingar en líklega þurfa sjóðsfélagar að fara í mál við lífeyrissjóðina til að fá að vita allt.
Tímakaupið meira en tvöfaldast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2011 | 12:44
Ollið!
Fór út af vegna hönnunargalla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2010 | 20:03
Æ hvað ég vona að þetta fari nú að ganga. :(
Mikið vona ég að Steingrímur nái nú að neyða Breta og Hollendinga til að semja um að fá að borga þeim eitthvað af alsnægtaborði Íslendinga. Það gæti verið fín afsökun fyrir því að geta ekki hjálpað aumum þegnum landsins. Þið getið þá reiknað með því, landar góðir, að lengra verður gengið í skatt- og skuldpíningu. Ef þessir aumu herrar verða áfram við stjórnvölinn verður kominn hátekjuskattur á verkamannalaun áður en langt um líður. Horfið á teiknimyndina "Robin Hood" og sjáið Steingrím sem prins John og hugmyndafræðinginn Indriða H. Þorláksson sem fógetann. Jón Bjarnason gæti svo verið snákurinn.
Það verður að koma þessu liði burt helst strax áður en það nær að leggja allt í rúst.
Skriður kominn á Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.10.2010 | 22:51
Þvílík ósvífni í pöbulnum.
Aðför að lífeyrissparnaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2010 | 21:54
Berum höfuðið hátt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2010 | 22:22
Skaðabætur vegna lagasetningar.
Það getur skapast skaðabótaábyrgð verði sett lög á fjármálafyrirtæki vegna stökkbreyttra lána segja höfðingkarnir í stjórnarráðinu. Fyrir fáum vikum féll dómur í gengislánamáli. Þá boðaði sællegi trúðurinn sólbrúni lagasetningu til að tryggja að allir gengislánaþegar skyldu kingja sama óréttlæti (enda jafnaðarmaður) þá spyr ég ,eins og fávís kona. Skapar sú lagasetning ekki skaðabótaábyrgð? Líklega veða þá bara sett lög um skaðabætur fyrir almúgann til að forða því. Þið vitið sauðsvartur almúginn á ekki að njóta réttinda samkvæmt þeirra kenningum, bara að liggja í skítnum með öllum hinum. Liggja í skítnum? Er þetta örugglega sólbrúnka á Árna Páli?
Niðurfærsla rædd í vikunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2010 | 11:39
Mikið dæmalaust er veðrið gott.
Var kominn út kl. 8 í morgunn. Hitinn var nálægt 10°c og sól í heiði, bærðist ekki hár á höfði og veröldin brosti sínu blíðasta. Þvílík fegurð. Hvað gerir maður á svona degi? Ég held að maður slökkvi á fjölmiðlum ,reimi á sig skó og haldi af stað útí heiminn. Maður þarf ekki að fara langt nóg að ganga í 5 mínútur þá er maður kominn út fyrir byggð og þar getur maður gleymt öllum heimsins áhyggjum og virt fyrir sér lífsbaráttu fugla og allskyns smákvikinda. Eru þetta akki bara ágætis áform fyrir daginn? Alla vega ætla ég að kúpla mér frá raunveruleikanum í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2010 | 23:21
Fórnarlömb.
Það er leitt að heyra að einhverjir hafi verið ginkeyptir fyrir svona endemis bulli. En má ég minna á að Íslensk svikamilla náði að kría út 16000 milljarða bæði frá Íslendingum og um allan heim. Ég veit ekki hvað ykkur finns en mér finnst það allavega jafnstór frétt.
Fórnarlömb alþjóðlegrar svikamyllu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)